Um Bjargráð (faff)

Bjargráð er verkefni sem hófst í ágúst 2022. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið veitir Biskupsstofu styrk til að veita aðstandendum fanga faglega aðstoð. Þjóðkirkjan - Biskupsstofa útvegar húsnæði og faglegt starfsumhverfi. Húsnæðinu deilir Bjargráð (FAFF) með Fjölskyldu- og sálgæsluþjónustur kirkjunnar sem staðsett er í Háteigskikju. Þjónustan tekur mið af fjölbreytileika samfélagsins og stendur öllum til boða, óháð trú eða lífsýn

Þjónustan er óháð búsetu og henni ætluð að sinna fjölskyldum fanga um allt land. Aðstandendur fanga eru í viðkvæmri stöðu og mikilvægt er að veita stuðning og ráðgjöf bæði í kjölfar þess áfalls að nákominn aðila er handtekinn, einnig meðan beðið er eftir dómi, ef viðkomandi hlýtur dóm, að takast á við fjarveru viðkomandi. Einnig aðstoðum við einstaklinga og fjölskyldur þegar aðili er að koma úr afplánun og er að fara aftur í parsambandið sitt eða er að tengjast börnum sínum eða fjölskyldu.

Þegar talað er um aðstandendur er átt við m.a. foreldra, maka, börn, systkini og jafnvel nána vini. Verkefnið verður unnið í samstarfi við fagfólk um allt land. Fjölskyldufræðingar Bjargráðs eru í sambandi við viðeigandi stofnanir og einstaklinga, þar má nefna: lögreglu, fangelsismálayfirvöld, félagsþjónustu og barnavernd, sálfræðinga og presta. Verndari Bjargráðs er Sr. Sigrún Óskarsdóttir (fyrrv. fangaprestur).

Fjölskyldufræðingar Bjargráðs eru: 
Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir, gudrun.snaebjort@kirkjan.is
Harpa Halldórsdóttir, harpah@kirkjan.is
Jenný Þórkatla Magnúsdóttir, jenny.magnusdottir@kirkjan.is
Leit