Listmeðferð

Hvað er listmeðferð (e. Art Therapy)

Listmeðferð er meðferð sem byggist á sálfræðikenningum og sköpun.

Sálfræðikenningar, sbr. tengslakenningar, þroskakenningar, samkenndarnálgun, hugræn nálgun, núvitund og leiðir til listsköpunar miðast við þá skjólstæðingahópa sem unnið er með hverju sinni.

Í listmeðferð er skjólstæðingnum skapað rými til persónulegrar tjáningar á tilfinningum og hugarheimi með fjölbreytilegum myndlistarefnivið í öruggu umhverfi undir umsjón listmeðferðarfræðings. Í vinnuferlinu er ekkert rétt eða rangt og því engin þörf á færni eða reynslu í myndsköpun.

Tilgangur meðferðarinnar er að vinna með tilfinningar og líðan í gegnum ýmiss konar efnivið, form, sköpun og samtal – og alls ekki að skapa fullkomin listaverk. Það skiptir máli hvaða merkingu hver og einn leggur í myndverk sitt og listmeðferðarfræðingurinn hjálpar skjólstæðingnum að skoða hug sinn þar að lútandi. Þessar aðstæður geta hjálpað við að vinna á táknrænan hátt úr erfiðri lífsreynslu, setja orð á tilfinningar og hugsanir og einnig örvað sköpunargáfu, sjálfstraust og virðingu fyrir eigin hæfileikum og getu.

Skjólstæðingar listmeðferðafræðinga eru á öllum aldri; einstaklingar sem glíma m.a. við geðræn vandamál, hafa orðið fyrir alvarlegum áföllum eða eru að glíma við sjúkdóma eða fatlanir. 




Listmeðferð er ný þjónusta sem er í boði fyrir börnin frá byrjun árs 2026. Hafið samband við Hörpu hjá Bjargráði til að fá upplýsingar (harpah@kirkjan.is)
Leit