Fyrir aðstandendur

Aðstandendur

Þegar einhver nákomin þarf að afplána dóm getur allt lífið breyst. Það getur átt við þegar viðkomandi er handtekinn, bíður eftir dómi, fer í afplánun eða er að losna úr afplánun. Fólk upplifir áfall, skömm, sorg, reiði og jafnvel stundum létti. Allur tilfinningaskalinn er undir og allar tilfinningar þurfa sitt pláss. Það er mikilvægt að einstaklingar og fjölskyldur geti leitað aðstoðar hjá fagaðilum sem aðstoðar fólk á þessum tímum. Aðstandendur geta tengst viðkomandi á misjafnan hátt, verið núverandi eða fyrrverandi maki, barnsforeldri, faðir, móðir, systkini, afi eða amma. Fólk þarf ekki endilega að vera í tengslum við viðkomandi en gæti hafa átt langt og jafnvel erfitt samband við þann sem er að afplána og þarf því ekki síður á faglegri aðstoð að halda.

Maki Mjög margt breytist í parasambandinu eða fjölskyldulífinu þegar annar aðilinn þarf að afplána dóm. Tekjur annars aðilans fara út en reikningar heimilisins hverfa ekki, það getur auðveldlega sett allt í erfiðari stöðu sem bætist við allar aðrar tilfinningar sem í gangi eru. Reiði og skömm eru tilfinningar sem þekkjast vel, áhyggjur af því hvað öðrum finnst, verð ég dæmd/ur fyrir það sem viðkomandi gerði af sér. Hvernig á ég að segja frá þessu er algeng spurning hjá maka.   

Börn þeirra sem aflána Börn geta orðið vitni af því þegar foreldri þeirra er handtekið, sú reynsla getur orðið til þess að börn verða fyrir gríðarlegu áfalli. Einnig getur tíminn á meðan beðið er eftir að aflánun hefst verið flókin þar sem foreldrar eru að hlífa barninu fyrir þeim fréttum og stundum fá börn ekki að vita hvað framundan er, en börn eru næm og finna að oftar en ekki að það er ekki allt eins og það á að vera. Það er mikilvægt að ræða við börnin um hvað framundan er, ef það reynist erfitt er gott að ræða við fagfólk hjá Bjargráði og fá aðstoð við það.   

Foreldrar Einstaklingar á öllum aldri sem aflána dóm eiga mjög margir foreldra. Það getur verið erfitt að horfast í augu við það að „barnið“ mitt hefur framið glæp sem leiddi það að verkum að það fékk dóm og þarf að fara í fangelsi. Þarna læðist skömmin sér oft inn þar sem foreldrar gagnrýna sjálfa sig fyrir að hafa mistekist. Mikilvægt er að foreldrar fái aðstoð með þessar tilfinningar og geti rætt þær við fagfólk sem er að vinna í þessum málum.   

Fullorðin börn fanga Það getur verið skrýtið að pabbi eða mamma fái dóm þegar maður er komin á fullorðinsaldur. Fólkið sem ól mann upp, aðili sem manni þykir vænt um, aðilinn sem kom alltaf og aðstoðaði þegar eitthvað bjátaði á er ekki lengur til staðar. Í því getur falist mikill söknuður.    

Systkini Að eiga systkini í fangelsi getur haft mjög flókin áhrif á líðan þeirra, en það getur verið mjög misjafnt hvernig brugðist er við slíku. Margir upplifa blöndu af tilfinningum, s.s. sorg og missi, þó svo að systkinið sé á lífi, þá breytist sambandið og daglega lífið, áhyggjur um öryggi þeirra, framtíðina eða líðan. Reiði og/eða vonbrigði gagnvart aðstæðunum eða ákvörðunum sem leiddu til fangelsunar. Skömm og einangrun, sumir forðast að tala um þetta af ótta við dóm annarra. Sektarkennd, að geta lifað eðlilegu lífi áfram á meðan systkinið situr inni. Það getur komið upp togstreita og óvissa með það að elska systkinið sitt á sama tíma og að vera ósammála gjörðum þess. Sumum finnst mikilvægt að vera sterk/ur fyrir fjölskylduna sem er í molum, sem getur gert það erfiðara að gefa eigin tilfinningum rými.      



Leit