Velkomin
Bjargráð (FAFF) styður við fjölskyldur sem eiga aðstandenda í fangelsi, að bíða eftir afplánun eða er að klára afplánun.
Hjá Bjargráði aðstoðum og styðjum við aðstandendur sem eiga fjölskyldumeðlim eða vin í fangelsi. Það getur t.d. verið að móðir, faðir, maki, fyrrverandi maki, amma, afi, systkini eða barnið þitt hafi nýlega verið handtekið eða farið í fangelsi og að þú þurfir að tala um erfiðar tilfinningar og áskoranir sem kunna að fylgja nýjum raunveruleika. Einnig aðstoðum við einstaklinga og fjölskyldur þar sem einhver er að bíða eftir afplánun eða að koma úr afplánun og er að fara aftur í parasambandið sitt eða er að tengjast börnum sínum og fjölskyldu.
Fagleg aðstoð fyrir fjölskyldur fanga
Þjónusta fyrir fjölskyldur og aðstandendur þeirra sem eru í afplánun. Aðstaða okkar í Bjargráði er hjá:
Sálgæslu- og fjölskylduþjónustu kirkjunnar á neðri hæð safnaðarheimilis Háteigskirkju, Háteigsvegi 27-29.
Einnig eftir samkomulagi í tilliti til búsetu.
